✨ Smá innblástur fyrir hvern dag!
Færðu meiri jákvæðni, hvatningu og hlýju inn í hversdaginn með fallegu setti af 25 jákvæðnispjöldum á íslensku.
Hvert spjald er með uppörvandi skilaboðum og frumsaminni myndskreytingu sem er hönnuð til að veita innblástur, hvetja til jákvæðrar hugsunar og minna á litlu, góðu hlutina í lífinu.
Veldu þér spjald á morgnana, stilltu upp uppáhaldsskilaboðunum þínum á litla trönustandinum sem fylgir eða dragðu spjald þegar þig vantar smá hvatningu.
Spjöldin koma í fallegri kraftpappírsöskju með svörtu skrautfylliefni og eru því tilvalin sem hugulsöm gjöf handa vini, ástvini eða sjálfum þér.
Settið inniheldur:
- 25 jákvæðnispjöld á íslensku
- Frumsamdar myndskreytingar og hvetjandi skilaboð
- 1 lítinn trönustand úr tré
- Kraftpappírsöskju með skrautfylliefni
Stærð spjalda: 5 × 8 cm
Lítil en innihaldsrík gjöf sem færir jákvæðni og hlýju inn í hversdaginn.
✨ Hannað og útbúið af ást og alúð hjá Eyja Gjöf.










Отзывы
Engar umsagnir ennþá.