Færðu smá part af Heimaey inn á heimilið með þessu myndskreytta dagatali sem er tileinkað fallegu eyjunni okkar.
Dagatalið samanstendur af 13 aðskildum kortum, 12 × 14 cm — einu fyrir hvern mánuð ásamt einu upphafskorti. Hver mánuður er skreyttur með upprunalegri teikningu innblásinni af Heimaey. Í dagatalinu eru einnig íslenskir frídagar, merkisdagar og hátíðir á Heimaey.
Allar myndirnar eru handteiknaðar af mér og innblásturinn kemur frá eyjunni, landslaginu, stöðum og þeirri einstöku stemningu sem einkennir Heimaey.
Dagatalið er prentað á hágæða Munken Polar pappír, 300 g/m², sem gefur myndunum fallega áferð og vandað útlit.
Þessi útgáfa er án málmstands og hentar vel ef þú átt nú þegar stand frá fyrra Heimaey-dagatali
Stærð: 12x14 cm
Pappír: Munken Polar, 300 g/m²
Inniheldur: 13 myndskreytt dagatalskort
Standur: Fylgir ekki








Отзывы
Engar umsagnir ennþá.