Færðu smá part af Heimaey inn á heimilið með þessu myndskreytta dagatali sem er tileinkað fallegu eyjunni okkar.
Dagatalið samanstendur af 13 aðskildum kortum, 12 × 14 cm — einu fyrir hvern mánuð ásamt einu upphafskorti. Hver mánuður er skreyttur með upprunalegri teikningu innblásinni af Heimaey. Í dagatalinu eru einnig íslenskir frídagar, merkisdagar og hátíðir á Heimaey.
Allar myndirnar eru handteiknaðar af mér og innblásturinn kemur frá eyjunni sjálfri, landslaginu, stöðum og þeirri einstöku stemningu sem gerir Heimaey svo sérstaka.
Dagatalið er prentað á hágæða Munken Polar pappír, 300 g/m², sem gefur myndunum fallega áferð og vandað útlit.
Með dagatalinu fylgir málmstandur sem gerir auðvelt að hafa það á skrifborði, hillu eða náttborði og njóta nýrrar myndar í hverjum mánuði.
Stærð: 12x14 cm
Pappír: Munken Polar, 300 g/m²
Inniheldur: 13 myndskreytt dagatalskort + málmstand









Отзывы
Engar umsagnir ennþá.